Íslenska matsfræðifélagið
Fréttir  
Fyrsti félagsfundurinn 18.okt 2007
18/10/2007

Þann 18.október var fyrsti félagsfundur í matsfræðifélaginu haldin í hádegi að Hótel Loftleiðum. Til fundarins mættu 14 manns. Fyrirlesarar voru Sigurlína Davíðsdóttir og Penelope Lisi, þær greindu frá langtímarannsókn sinn á sjálfsmati í skólum. Rannsókn þeirra hófst árið 2000 og er þróun hennar rakin í grófum dráttum í fylgiriti sem sjá má hér að neðan.
Að lokinni kynningu þeirra Sigurlínu og Penelope Lisi var opnað fyrir spurningar og almennar umræður.
Þess má geta að á fundinum sátu fulltrúar frá Menntamálaráðuneytinu, KHÍ og öllum skólastigum.

 
Hádegisverðarfundur
10/10/2007
Fimmtudaginn 18. október stendur Íslenska matsfræðifélagið fyrir hádegisverðarfundi í Blómasal Hótel Loftleiða. Um er að ræða rabbfund
þar sem Dr. Penny Lisi og Dr. Sigurlína Davíðsdóttir munu tala um langtímarannsókn sína á sjálfsmati skóla þar sem unnið er með
lýðræðislegum umræðum.
Hótel Loftleiðir býður upp á hádegisverðarhlaðborð með úrvali forrétta, aðalrétta og eftirrétta fyrir 1950 kr. Mat og drykki
borgar hver fyrir sig en að öðru leyti er fundurinn í boði félagisns. Fundurinn verður frá 12-13 og gott væri að
fundargestir gætu mætt tímanlega, eða um 11:45 svo að allir geti verið sestir í sal með sinn mat klukkan 12 stundvíslega.
Fundurinn er opinn félögum í Íslenska matsfræðifélaginu og gestum þeirra. Þátttöku þarf að tilkynna til Bjarkar á netfangið: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það fyrir kl. 16.00 þann 17. október
Fyrir hönd stjórnar, Björk
 
Íslenska matsfræðifélagið stofnað
15/05/2007

Íslenska matsfræðifélagið var stofnað á fundi félagsins í Menntaskólanum í Kópavogi þann 15. maí 2007. Félagið er fagfélag matsfræðinga á Íslandi.
Meginmarkmið með stofnun félagsins er að efla faglega umræðu um viðfangsefni matsfræðinnar.

Frekari markmið félagsins eru hugsuð:

- Að skapa vettvang fyrir faglega umræðu um matsrannsóknir
- Að kynna fræðigreinina og stuðla að vexti og viðgangi hennar á Íslandi
- Að efla tengsl og samstarf félagsmanna
- Að vinna að hagsmunamálum matsfræðinga
- Að vinna að þróun íslenskra matsstaðla

Á stofnfundi félagsins voru eftirtaldir kosnir í stjórn félagsins:
- Björk Ólafsdóttir (formaður), matsfræðingur hjá Ísmat ehf
- Margrét Friðriksdóttir, skólameistari Menntaskólans í Kópavogi
- Halldóra Pétursdóttir, leikskólastjóri Laufskálum
- Sigurborg Matthíasdóttir, konrektor Menntaskólans við Hamrahlíð
- Ólafur H. Jóhannsson, aðjúnkt við Kennaraháskóla Íslands.

Í varastjórn eru:
- Sigríður Sigurðardóttir, matsfræðingur hjá Ísmat ehf.
- Oddný Harðardóttir, bæjarstjóri í Garði.

Á fundinum voru lög félagsins samþykkt
og má finna þau hér . Einnig er hægt er að lesa fundargerð stofnfundarins hér.
Hægt er að gerast stofnaðili að félaginu með því að senda
umsókn á Björk Ólafsdóttur formann félagsins á netfangið Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það .
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>

Úrslit 16 - 18 af 18
Um félagið

Íslenska matsfræðifélagið er fagfélag matsfræðinga á Íslandi.  Meginmarkmið þess er að efla faglega umræðu um viðfangsefni matsfræðinnar á Íslandi.  Félagið var stofnað á fundi í Menntaskólanum í Kópavogi þann 15. maí 2007.

Stjórn félagsins skipa:

Formaður:
- Björk Ólafsdóttir

Ritari:
- Helga Dís Sigurðardóttir

Meðstjórnendur:

- Halldóra Pétursdóttir
- Sigríður Sigurðardóttir

Gjaldkeri:

- Ólafur H. Jóhannsson

Varastjórn:
- Sigurlína Davíðsdóttir
- Auður Pálsdóttir