Íslenska matsfræðifélagið
Fréttir arrow Lög  
Lög
1. gr.
Félagið heitir Íslenska matsfræðifélagið (Icelandic Evaluation Association), skammstafað ÍMF. Aðsetur félagsins er að jafnaði á vinnustað formanns stjórnarinnar.

2. gr.
Markmið félagsins eru:
- Að skapa vettvang fyrir faglega umræðu um matsrannsóknir
- Að kynna fræðigreinina og stuðla að vexti og viðgangi hennar á Íslandi
- Að efla tengsl og samstarf félagsmanna
- Að vinna að hagsmunamálum matsfræðinga
- Að vinna að þróun íslenskra matsstaðla

3. gr.
Aðild að félaginu geta átt einstaklingar sem lokið hafa meistaranámi eða doktorsnámi með sérstaka áherslu á matsrannsóknir og aðrir þeir sem stjórn telur uppfylla kröfur sem gerðar eru til háskólamenntaðra matsfræðinga. Sá sem vill ganga í félagið sendir skriflega umsókn um inngöngu til stjórnar. Úrsögn úr félaginu skal sömuleiðs vera skrifleg til stjórnar. Skuldi félagsmaður tvö árgjöld skoðast það sem úrsögn úr félaginu.

4. gr.
Stjórn félagsins skipa fimm manns: Formaður, gjaldkeri, ritari, varaformaður og meðstjórnandi. Í varastjórn skulu kjörnir tveir menn. Stjórn skal kosin á aðalfundi til tveggja ára í senn og skal kosning vera skrifleg ef þess er óskað. Kjósa skal formann sérstaklega en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Stjórnarmenn sitja lengst fjögur kjörtímabil samfleytt. Kjósa skal tvo skoðunarmenn reikninga til tveggja ára.

5. gr.
Aðalfund skal halda á tímabilinu febrúar til apríl ár hvert og skal hann boðaður með minnst 14 daga fyrirvara með tölvupósti á póstlista félagsins. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Verkefni aðalfundar er m.a. afgreiðsla á skýrslu stjórnar og reikninga, ákvörðun árgjalda, auk kosninga sem um getur í 4. gr. Á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti atkvæða.

6. gr.
Reikningsár félagsins er almanaksárið. Stjórnin skal hafa ársreikning endurskoðaðan af skoðunarmönnum tilbúinn í tæka tíð fyrir aðalfund.

7. gr.
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og þurfa að minnsta kosti 2/3 fundarmanna að samþykkja breytingarnar. Tillögur að lagabreytingum þurfa að berast stjórninni eigi síðar en 15. janúar ár hvert. Taka skal fram í fundarboði ef lagabreytingar eru á dagskrá og skal efni þeirra lýst.

8. gr.
Ákvörðun um slit félags verður tekin á aðalfundi með einföldum meirihluta og renna eignir þess til Umhyggju, félags langveikra barna.

Þannig samþykkt á stofnfundi 15. maí 2007 og öðlast þegar gildi.
 
Um félagið

Íslenska matsfræðifélagið er fagfélag matsfræðinga á Íslandi.  Meginmarkmið þess er að efla faglega umræðu um viðfangsefni matsfræðinnar á Íslandi.  Félagið var stofnað á fundi í Menntaskólanum í Kópavogi þann 15. maí 2007.

Stjórn félagsins skipa:

Formaður:
- Björk Ólafsdóttir

Ritari:
- Helga Dís Sigurðardóttir

Meðstjórnendur:

- Halldóra Pétursdóttir
- Sigríður Sigurðardóttir

Gjaldkeri:

- Ólafur H. Jóhannsson

Varastjórn:
- Sigurlína Davíðsdóttir
- Auður Pálsdóttir