| Hádegisverðarfundur 5.mars |
| Höfundur: Björk Ólafsdóttir | |
| 02/03/2008 | |
|
Miðvikudaginn 5. mars stendur Íslenska matsfræðifélagið fyrir hádegisverðarfundi. Um er að ræða rabbfund þar sem Katrín Frímannsdóttir mun segja okkur frá doktorsritgerðinni sinni sem heitir "Tilgangur, framkvæmd og notkun sjálfsmats í sex íslenskum grunnskólum" og fjallar um eins og nafnið gefur til kynna sjálfsmatsferlið. Hún rannsakar heilt sjálfsmatsferli í hverjum skóla, tilgang, undirbúning, framkvæmd og notkun og ber saman við kenningar bæði frá Evrópu og USA. Fundurinn verður haldinn á veitingastað Maður Lifandi, Borgartúni 24. Hver og einn velur af matseðli eftir sínum óskum og við fáum afstúkaða aðstöðu fyrir okkur á neðri hæðinni. Fundurinn er opinn félögum í Íslenska matsfræðifélaginu og gestum þeirra. Gott væri að þið létuð vita um þátttöku fyrir 4. mars til að hægt sé að láta veitingastaðinn vita um fjölda. Þátttaka tilkynnist til Bjarkar Ólafsdóttur á netfangið: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það |
