|
Félagsfundur 5. mars 2008 |
|
Höfundur: Halldóra Pétursdóttir
|
|
20/04/2008 |
|
Félagsfundur í íslenska matsfræðifélaginu var haldinn í hádegi þann 5 mars. Til fundarins voru mættir 13 félagsmenn.
Gestur fundarins var Katrín Frímannsdóttir sem kynnti doktorsverkefni sitt. Rannsókn hennar byggir á tilgangi, framkvæmd og notkun mats í 6 grunnskólum á Íslandi. Grunnspurningar hennar beinast meðal annars að því hvað sé góður skóli, hvað sé góð menntun, hvort íslenskir skólar standist þær kröfur sem alþjóðasamfélagið setur og hvort íslenskir skólar geti metið sig sjálfir og tekið ákvarðanir byggðar á eigin ákvörðunum. Í dag starfar Katrín við gæðaeftirlit aðallega innan heilbrigðiskerfisins en hún rekur eigið fyrirtæki.
Hægt er að lesa um kynningu Katrínar hér.
Að lokinni kynningu gafst fundargestum kostur á að leggja spurningar fyrir Katrínu og var hún meðal annars spurð að “hvernig stuðningi hún teldi að skólar þyrftu mest á að halda?”. Hún álýtur að það sé mikilvægt að það sé í formi ráðgjafar, þeir komi og styrkji skóla við gerð mats og að beinast liggi við að ráðgjöfin komi frá sveitarfélögunum. Katrín benti einnig á að hægt sé að vinna mat á mismunandi hátt ekki þurfi alltaf að vinna alsherjarmat sem ljúki með skýrslu, jafningjamat og sjálfsmat er líka mikilvægt.
|