| Umræðufundur 12. nóvember |
| Höfundur: Björk Ólafsdóttir | |
| 06/11/2008 | |
|
Miðvikudaginn 12. nóvember stendur Íslenska matsfræðifélagið fyrir opnum umræðufundi þar sem fjallað verður um matsákvæði í nýjum lögum fyrir leik-, grunn-, og framhaldsskóla. Framsögu á fundinum hafa: o Védís Grönvold, sérfræðingur, sem fjallar um lögin frá sjónarmiði menntamálaráðuneytis o Margrét Friðriksdóttir, skólameistari MK, sem ræðir hvernig þau birtast framhaldsskólunum o Ólafur H. Jóhannsson, aðjunkt HÍ, og Halldóra Pétursdóttir, leikskólastjóri Laufskálum, sem fjalla um þau út frá leik- og grunnskólunum Fundurinn verður haldinn í stofu E 302 í húsnæði menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð frá kl. 16.30 – 18.00 og er öllum opinn. |
