|
Umræðufundurinn 12. nóvember |
|
Höfundur: Halldóra Pétursdóttir
|
|
26/11/2008 |
|
Íslenska matsfræðifélagið stóð fyrir opnum fundi um matsákvæðin í nýjum lögum um leik-, grunn- og framhaldsskóla 12. nóvember. Þar var meðal annars fjallað um lögin frá sjónarmiði menntamálaráðuneytisins og út frá skólastigunum þremur. Þeir aðilar sem voru með framsögu voru Védís Grönvold frá menntamálaráðuneytinu , Margrét Friðriksdóttir skólameistari MK fyrir framhaldsskóla , Ólafur H Jóhannsson aðjúnkt HÍ og Halldóra Pétursdóttir leikskólastjóri í Laufskálum fyrir leik- og grunnskóla. Smellið á nöfn framsögumannana hér á undan til þess að skoða glærur þeirra. Á fundinum kom fram að skólastigin hafa mislengi stundað mat á skólastarfinu og með mismunandi aðferðum. Fram kom að ekkert auka fjármagn fylgir með til að framfylgja þessum nýju ákvæðum. Ljóst er að ábyrgð sveitarfélaganna með eftirliti og framkvæmd mats er aukin innan leik- og grunnskóla en menntamálaráðuneyti hefur áfram ábyrgð á framkvæmd og eftirliti í framhaldsskólum. Talsverður áhugi er greinilega fyrir útfærslu matsákvæðanna í nýju lögunum en fundurinn var fjölmennur og hann sóttu einstaklingar sem starfa á öllum skólastigum. Halldóra Pétursdóttir ritari
|