|
Félagsfundur 25. mars í MK |
|
Höfundur: Sigríður Sigurðardóttir
|
|
20/03/2009 |
|
Miðvikudaginn 25. mars stendur Íslenska matsfræðifélagið fyrir félagsfundi. Á honum mun Anna Magnea Hreinsdóttir segja frá doktorsritgerðinni sinni sem heitir “Af því að við erum börn.” Ritgerðin greinir frá rannsókn hennar sem hafði að markmiði að skoða og meta, með þátttöku barna, starf fjögurra leikskóla á Íslandi. Menntun leikskóla og þjónusta þeirra var metin af fulltrúum foreldra, starfsfólks og barna og áhrif einkaaðila á rekstur leikskóla skoðuð. Aðaláherslan í fyrirlestrinum verður á þær aðferðir sem Anna Magnea notaði við matið.
Fundurinn verður haldinn í Menntaskólanum í Kópavogi í stofu N-12 (á jarðhæð, gengið inn N-gang úr aðalholi). Fundartími er frá klukkan 17:00 – 18:00 og er fundurinn öllum opinn.
|